
von Colin Forbes
Hvernig er hægt að leita hefndar þegar þú veist ekki hverjum þú ert að leita af? Síðustu skilaboðin sem Bob Newman, starfsmaður í teymi Tweed aðstoðarforstjóra hjá bresku leyniþjónustunni, fékk frá eiginkonu sinni áður en hún var myrt voru að stöðva yrði Adam Procane. Myndband af morðinu er sent til London ásamt hótun um að halda sig frá Procane. En vandamálið er enn stærra: það veit enginn hver Procane raunverulega er. Nafnið er dulnefni einstaklings sem hefur aðgang að viðkvæmum upplýsingum bandarískra stjórnvalda. Hann ætlar sér að svíkja eigið land og flýja sem gætu haft alvarlegar afleiðingar. Knúinn áfram af sorg og í hefndarhug fer Bob af stað í leyfisleysi til að finna einstaklinginn sem drap eiginkonu hans. Til þess að Bob komi sér ekki í frekari vandræði fara Tweed og teymið hans á eftir honum. Þau verða að finna út hver Procane er áður en það verður um seinan. Flóttinn gegnum Finnland er sérsniðin fyrir þá sem vilja kafa inn í heim leyndardóma, hættu og flókinna samsæra þar sem hver blaðsíða færir þá nær sannleikanum.
* Affiliate-Link — kein Mehrpreis für dich.
Sortiert nach Gesamtpreis inkl. Versand, sofern verfügbar.
Weitere Werke desselben Verfassers.
Bester Preis · bücher.de
9,99 €
Bester Preis
Ab 12,99 €