
Hvað gerist þegar fríið breytist í martröð og morðingi lætur ekkert stöðva sig – ekki einu sinni landamæri? Rannsóknarlögreglumaðurinn Jacob Kanon einsetur sér að komast að því. Á ferðalagi í Róm er ungt bandarískt par myrt. En þau eru ekki þau einu – ung pör finnast myrt í fleiri borgum Evrópu og öll eiga morðin það sameiginlegt að dagblöðum á staðnum eru send póstkort áður en morðin eru framin. Jacob Kanon er rannsóknarlögreglumaður í New York og faðir eins fórnarlambsins. Hann er staðráðinn í að ráða gátuna og koma höndum yfir morðingja dóttur sinnar, en allt kemur fyrir ekki. Þegar sænska blaðakonan Dessie Larsson fær enn eitt póstkortið sem virðist spá fyrir um morð, í Stokkhólmi í þetta sinn, taka þau höndum saman og komast fljótt á slóðir morðingjans. Þegar bókin kom út fór hún beint á topp sænska metsölubókalistans. Hún tróndi einnig á toppnum á metsölulista New York Times, sem er aðeins í annað sinn sem verk sænsks höfundar lendir þar.
* Affiliate-Link — kein Mehrpreis für dich.
Sortiert nach Gesamtpreis inkl. Versand, sofern verfügbar.
Weitere Werke desselben Verfassers.
Bester Preis · bücher.de
8,99 €
Bester Preis
Ab 14,99 €